Þórsarar máttu þola 81-92 tap gegn Val í fyrsta leik úrslitaeinvígis um laust sæti í Iceland Express deild karla í kvöld. Heimamenn hófu leikinn ögn betur en gestirnir. Smá saman náðu þó Valsmenn yfirhöndinni og leiddu leikinn í hálfleik 42-47. Valsmenn leiddu leikinn lengi vel í síðari hálfleik með 7-10 stigum en með mikilinni baráttu náðu Þórsarar að minnka muninn niður í tvö stig, 72-74. Heimamenn komust þó ekki nær og Valsmenn fögnuðu því 81-92 sigri og þurfa því norðanmenn að vinna leikinn á mánudag til að knýja fram oddaleik.
Það sást strax á fyrstu mínútum leiksins að mikið var í húfi fyrir bæði lið. Liðin gerðu nokkur mistök í upphafi leiks og sóknarleikur liðanna ekki upp á sitt besta. Heimamenn byrjuðu þó örlítið betur en þá sérstaklega Wesley Hsu sem skoraði 8 af fyrstu tíu stigum heimamanna. Valsmenn náðu þó smá saman yfirhöndinni og leiddu leikinn með einu stigi, 22-23 eftir fyrsta fjórðung. Valsmenn voru skrefinu á undan heimamönnum í öðrum leikhluta. Þegar Þórsarar virtust ætla að taka sprett, náðu gestirnir ávallt að svara fyrir sig. Gestirnir leituðu mikið til þeirra Calvin Wooten og Phillip Perre en þeir tveir báru algjörlega sóknarleik gestanna uppi. En þeir tveir skoruðu 34 af 47 stigum Valsmanna í fyrri hálfleik. Varnarleikur heimamanna náði aldrei neinu flugi í fyrri hálfleik á meðan gestirnir voru vel einbeittir. Engu að síður leiddu gestirnir leikinn einungis með fimm stigum í hálfleik, 42-47.
Valsmenn byrjuðu síðari hálfleikinn betur en heimamenn og leiddu leikinn lengi vel með 8-10 stigum og virtust vera með ágætis völd inn á vellinum. Dimitar Petrushev og Ólafur Torfason náðu þó ágætis spretti fyrir heimamenn sem náðu að minnka forskot gestanna niður í fjögur stig, 60-64 fyrir fjórða og síðasta fjórðunginn.
Leikurinn var nokkuð jafn allan tímann í fjórða leikhluta en gestirnir frá Hlíðarenda voru ávallt skrefi á undan heimamönnum. Þórsarar náðu að minnka muninn niður í tvö stig, 72-74 en þá komu fimm stig í röð frá gestunum og staðan skyndilega 72-79 er stutt var til leiksloka. Þórsarar reyndu þó hvað sem þeir gátu til að koma sér enn nær gestunum en lítið gekk upp. Heimamenn voru ekki nógu góðir á vítalínunni og nýttu einungis 14 af 24 vítaskotum í leiknum. Nýting heimamanna utan þriggja stiga línuna var að sama skapi skelfileg. Þriggja stiga nýting Þórsara var einungis 19%, einungis 6 af 31 rataði rétta leið. Þessi slaka nýting heimamanna á vítalínunni sem og fyrir utan þriggja stiga línuna gerði þeim afar erfitt fyrir. Vörn heimamanna var heldur ekki að finna sig í leiknum og áttu í miklum vandræðum með að stöðva Valsmenn og lítið breyttist eftir að Þórsarar skiptu yfir í svæðisvörn. Valsmenn voru yfirvegaðir undir loks leiksins og náðu að landa 81-92 sigri sem þýðir að Þórsarar þurfa nauðsynlega að vinna á Hlíðarenda til að knýja fram oddaleik.
Atkvæðamestir heimamanna: Konrad Tota 20, Dimitar Petrushev 20, Wesley Hsu 14, Ólafur Torfason 14, Óðinn Ásgeirsson 10, Hrafn Jóhannesson 4
Atkvæðamestir gestanna: Calvin Wooten 34 stig, Phillip Perre 28, Birgir Björn Pétursson 9, Hörður Helgi Hreiðarsson 8, Alexander Dungal 6, Snorri Páll Sigurðsson 2, Sigmar Egilsson 2, Björgvin Rúnar Valetínusson 2
Umfjöllun: Sölmundur Karl Pálsson





