Topplið Dominos deildar kvenna hefur sagt upp samningi sínum við Alexöndru Petersen erlenda leikmann sinn. Þetta staðfesti Darri Freyr Atlason í samtali við Karfan.is.
Lexi er 25 ára bakvörður sem spilaði með Oregon í háskólaboltanum og eitt tímabil í efstu deildinni í Grikklandi áður en hún samdi við Val fyrir tímabilið. Hún er með 19,4 stig, 7,5 stig og 5,9 stoðsendingar að meðaltali í leik fyrir Val hingað til en liðið situr á toppi Dominos deildarinnar um hátíðarnar.
Valsarar hafa einnig gengið frá ráðningu nýs erlends leikmanns. Aaliyah Whiteside hefur skrifað undir samning um að leika með Val út tímabilið.
Whiteside er 23. ára alhliðaleikmaður. Hún lék með Georgia Tech háskólanum í fjögur ár en hún hlaut stórar viðurkenningar á sínu lokaári með skólanum þar sem hún var á meðal bestu leikmanna sinnar deildar. (All American honorable mention, All ACC first team, ACC leading scorer,ACC All tournament Team).
Leikmaðurinn hefur þá leikið í Ungverjalandi auk Lúxemborg síðan hún útskrifaðist en hún var talin líkleg til að vera valin í nýliðavali WNBA deildarinnar árið 2016 en endaði ekki þar.
Í samtali við Karfan.is sagði Darri Freyr að tvær ástæður væru fyrir skiptunum. „Annars vegar er þetta taktískt, við viljum bara stækka liðið“ sagði Darri um ákvörðunina og bætti við.
„Alayah Whitside er svokallaður swingman og í þessari deild getur hún spilað stöðu 1-5. Hún getur verið með boltann og er ansi hávaxin. Svo kemur Bergþóra Holton aftur til baka eftir pásu svo þar bætist enn í bakvarðasveit okkar.“
„Svo vildi ég vera með meiri "go to" möguleika á lokastigum leiksins. Vera með einhvern sem líður betur að búa sér til körfur. Lexi er stórkostleg manneskja, frábært að fá að umgangast hana og hún er algjör atvinnumaður auk þess að vera hörkugóð í körfu en hún hefur ekki alveg þennan eiginleika.“
„Hún gæti samt átt auðveldara með að spila í betri deild heldur en aðrir leikmenn sem eru kannski að skila betri tölum. Hún hefur bara aldrei áður gengt þessu aðalhlutverki í liði eins og maður vill að erlendir leikmenn séu í Íslensku deildinni, það er ekkert öðruvísi hjá okkur þó við séum með breiðan hóp. “
Fyrsti leikur Whiteside með Val verður þann 6. janúar þegar Dominos deild kvenna rúllar aftur af stað. Þá fær liðið Breiðablik í heimsókn. Darri Freyr var á dögunum í viðtali við Karfan.is og má finna það hér.




