spot_img
HomeFréttirValsmenn lögðu baráttuglaða Haukamenn að velli

Valsmenn lögðu baráttuglaða Haukamenn að velli

22:33

{mosimage}
(Vel var tekið á því á Ásvöllum í kvöld)

Opnunarleikur 1. deildar karla var leikur Hauka og Vals á Ásvöllum. Fyrirfram var búist við öruggum sigri Valsmanna en þegar á reyndi reyndust Haukar ekki svo auðveld bráð. Valur hafði að lokum sigur 64-77 eftir að hafa verið fimm stigum yfir í hálfleik 37-42.

Leikurinn í kvöld var afar skemmtilegur þó að körfuboltinn hafi ekki verið sérlega fallegur. Bæði lið pressuðu og reyndu að hleypa hraðanum upp. Haukar voru ssterkari í byrjun og leiddu 17-11 og voru skyttur liðsins funheitar en þeir Marel Guðlaugsson og Sigurður Einarsson skoruðu báðir tvo þrista og voru funheitir. Haukar höfðu átta stiga forskot eftir fyrsta leikhluta og skoraði Arnar Hólm Kristjánsson flautukörfu fyrir Hauka.

Í öðrum leikhluta náðu Valsmenn betri tökum á leiknum og pressan þeir fór að virka. Stálu þeir mörgum boltum og náðu að jafna 33-33 og komast yfir með vítaskoti frá Ragnari Gylfasyni. Eftir það létu þeir forskotið ekki af hendi og fóru með fimm stiga forystu inn í hálfleikinn 37-42.

{mosimage}
(Hinn 19 ára gamli Hörður Hreiðarsson var öflugur í kvöld)

Þriðji leikhluti var frábær hjá Val og áttu Haukar í miklu basil með fína vörn gestanna. Val hélt áfram að stela boltum og juku þeir muninn og komast hann í 16 stig áður en leikhlutinn var allur.

Loka leikhlutinn var aðeins formsatriði fyrir Valsmenn og unnu þeir sanngjarnan 13 stiga sigur, 64-77.

Valsliðið átti ágætt kvöld og eru þeir með hávaxið lið sem gerði Haukum mjög oft erfitt fyrir um vik. Breiddin í liðinu er fín og eiga þeir þjálfarann sinn Rob Hodgson inni en hann var ekki með vegna meiðsla. Bestur hjá þeim var Hörður Hreiðarsson með 16 stig og Ragnar Gylfason skoraði 10. Alexander Dungal átti erfitt uppdráttar í leiknum og eyddi allt of mikilli orku í að kvarta í ágætum dómurum leiksins.

Hjá Haukum var Sigurður Þór Einarsson stigahæstur með 19 stig og gamla brýnið Marel Guðlaugsson var með tvennu 16 stig og 10 fráköst. Hann var sérstaklega öflugur í fyrri hálfleik og skoraði 14 stig en þreytan lét á sjá í þeim seinni. Elvar Traustason barðist eins og hundur og var með 9 stig og 10 fráköst og skutlaði sér í ófá skiptin á eftir boltanum.

Gaman verður að fylgjast með þessum liðum í vetur en þau tefla bæði fram mikið ef efnilegum leikmönnum og í kvöld voru bæði lið með stráka sem urðu Norðurlandameistarar með 16 ára landsliði Íslands í vor og stóðu þeir sig mjög vel.

Tölfræði leiksins

myndir og frétt: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -