Úrslitakvöld Reykjavíkurmótsins er hafið í Seljaskóla en það voru Valur og Ármann sem riðu á vaðið í leik um 5. sætið.
Valsmenn höfðu öruggan 100-70 sigur í leiknum en jafnt var á með liðunum í fyrri hálfleik en Valsmenn stungu af strax í þriðja leikhluta og sögðu skilið við Reykjavíkurmótið með 30 stiga sigri.
Mynd/ Frá viðureign Vals og Ármanns fyrir stundu.