HomeFréttirUTPA aftur á sigurbraut

UTPA aftur á sigurbraut

 
María Ben Erlingsdóttir og bandaríska háskólaliðið UTPA komust aftur á sigurbraut aðfararnótt fimmtudags þegar Houston Baptist skólinn kom í heimsókn. Fyrir leikinn hafði UTPA tapað fjórum leikjum í röð í Great West Conference riðlinum.
Lokatölur voru 80-67 UTPA í vil þar sem María lék í 20 mínútur og skoraði 6 stig og tók einnig 5 fráköst. Næsti leikur er svo annað kvöld gegn Utah Valley á útivelli en Utah er í 5. sæti riðilsins og UTPA í því sjötta.
 
Fréttir
- Auglýsing -