Bandaríkajmenn áttu ekki í miklum erfiðleikum með lið Venezuela í gær þegar þeir völtuðu yfir þá með 112 stigum gegn 69. Leikurinn var opnunar leikur í FIBA Americas Tournament. Carmelo Anthony og Michael Redd voru atkvæðamestir með 17 stig hvor. Amare Stoudamire kom næstur með 16 stig og Kobe Bryant setti lítil 14 stig. Þess má geta að byrjunarlið þeirra voru Lebron James, Kobe Bryant, Carmelo Anthony, Jason Kidd og Dwight Howard, svo sem hægt að sætta sig við það.