HomeFréttirÚrslit: Valskonur leika í Iceland Express deildinni næsta tímabil

Úrslit: Valskonur leika í Iceland Express deildinni næsta tímabil

 
Valur vann í kvöld úrslitaeinvígið sitt gegn Stjörnunni í 1. deild kvenna. Stjarnan er deildarmeistari í 1. deild og Valur hafnaði í 2. sæti og léku þessi tvö lið um laust sæti í úrvalsdeild á næstu leiktíð. Valur vann báða leikina með yfirburðum.
Leikur kvöldsins fór fram í Vodafonehöllinni þar sem Valskonur unnu sannfærandi, 97-55 og unnu því einvígið 2-0. Krystal Ellis var með 38 stig, 16 fráköst og 7 stoðsendingar í liði Vals. Hjá Stjörnunni var Bára Fanney Hálfdánardóttir með 14 stig og 17 fráköst.
 
Nánar um leikinn á eftir…
Fréttir
- Auglýsing -