HomeFréttirÚrslit: Rándýr sigur hjá KFÍ

Úrslit: Rándýr sigur hjá KFÍ

 
Ekki er öll nótt úti enn hjá KFÍ í Iceland Express deildinni en liðið var rétt í þessu að leggja Hamar að velli í Jakanum á Ísafirði og hefur nú 8 stig en KFÍ er engu að síður enn á botni deildarinnar, 2 stigum á eftir Fjölni.
Lokatölur í Jakanum í kvöld voru 86-83 KFÍ í vil en beina tölfræðilýsingin var ekki fyrir hendi að þessu sinni svo við birtum síðar stigahæstu menn leiksins. Nú er 18 umferðum lokið og standa leikar svona þegar 8 stig eru eftir í pottinum hjá liðunum:
 
1. Snæfell 30
2. KR 28
3. Keflavík 26
4. Grindavík 24
5. Stjarnan 20
6. Haukar 16
7. ÍR 14
8. Tindastóll 14
9. Njarðvík 14
10. Hamar 12
11. Fjölnir 10
12. KFÍ 8
Úrslit í 1. deild karla í kvöld:
 
FSu 78-87 Valur
Valur Orri Valsson gerði 22 stig og gaf 5 stoðsendingar í liði FSu en hjá Valsmönnum var Philip Perre með 29 stig og 16 fráköst.
 
Þór Þorlákshöfn 101-89 Breiðablik
Eric Palm gerði 27 stig í liði Þórsara en hjá Blikum sem í kvöld fengu stopp á sjö leikja sigurgöngu sinni voru Þorsteinn Gunnlaugsson og Nick Brady báðir með 23 stig en Þorsteinn var auk þess með 17 fráköst.
 
Mynd/ Shiran og Ísfirðingar lönduðu tveimur afar mikilvægum stigum í kvöld.
 
Fréttir
- Auglýsing -