spot_img
HomeFréttirÚrslit kvöldsins: Tindastóll lagði ÍR í framlengingu

Úrslit kvöldsins: Tindastóll lagði ÍR í framlengingu

21:09 

{mosimage}

Þrír leikir fóru fram í Iceland Express deildunum í kvöld. Keflavíkurkonur unnu nokkuð öruggan sigur á ÍS í íþróttahúsi Kennaraháskólans í Reykjavík. Lokatölur leiksins voru 65-83 Keflavík í vil. 

Í Stykkishólmi tók Snæfell á móti Haukum og höfðu Snæfellingar betur 96-71 þar sem Justin Shouse átti góðan dag. 

Framlengt var á Sauðárkróki þar sem Tindastóll og ÍR áttust við. Að loknum venjulegum leiktíma var staðan 85-85 en það voru á endanum Tindastólsmenn sem höfðu sigur í leiknum 103-97.

 [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -