spot_img
HomeBónusdeildinBónusdeild karlaÚrslit kvöldsins: Stjarnan rétt hafði Val í Origo Höllinni

Úrslit kvöldsins: Stjarnan rétt hafði Val í Origo Höllinni

Einn leikur fór fram í kvöld í fyrstu umferð Dominos deildar karla.

Í honum lagði Stjarnan lið Vals miklum spennuleik þar sem að úrslitin réðust ekki fyrr en á lokamínútunni.

Upphaflega áttu tveir lokaleikir þessarar fyrstu umferðar að vera á dagskrá í kvöld, en leik Þórs Akureyri og Keflavíkur var frestað svo að eini leikur kvöldsins var leikur Vals og Stjörnunnar.

Þessi fyrsta umferð fór af stað í gær, en þá lögðu Grindavík heimamenn í Hetti á Egilsstöðum í framlengdum leik, ÍR hafði betur gegn Tindastól í Síkinu, Þór vann Hauka heima í Þorlákshöfn og í Vesturbænum lágu heimamenn í KR fyrir Njarðvík.

Úrslit kvöldsins

Dominos deild karla:

Valur 86 – 91 Stjarnan

Fréttir
- Auglýsing -