Í kvöld fóru tveir leikir fram í Reykjanesmótinu og einn leikur í Lengjubikar kvenna þar sem Valskonur af Hlíðarenda mættu í Stykkishólm.
Lengjubikar kvenna:
Snæfell-Valur 63-57 (20-12, 8-14, 12-14, 23-17)
Snæfell: Kieraah Marlow 17/10 fráköst, Hildur Sigurdardottir 14/8 fráköst, Alda Leif Jónsdóttir 12/7 fráköst, Hildur Björg Kjartansdóttir 9/12 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 6/4 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 5, Aníta Sæþórsdóttir 0, Silja Katrín Davíðsdóttir 0, Rósa Indriðadóttir 0, Rebekka Rán Karlsdóttir 0.
Valur: Kristrún Sigurjónsdóttir 21/7 fráköst, Signý Hermannsdóttir 11, Hallveig Jónsdóttir 8, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 6/4 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 6/10 fráköst, Þórunn Bjarnadóttir 3/4 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 2/4 fráköst, Sóllilja Bjarnadóttir 0, Ragnheiður Benónísdóttir 0, Sara Diljá Sigurðardóttir 0, María Björnsdóttir 0, Kristín Óladóttir 0.
Dómarar: Davíð Kr. Hreiðarsson, Sigmundur Már Herbertsson, Sigurbaldur Frímannsson.
Reykjanesmót karla:
Haukar 70-85 Stjarnan
Stjarnan vann öruggan sigur á Haukum í Reykjanesmótinu í gær en liðin mættust í Schenker-höllinni. Leikurinn var jafn framan af og ekki miklu á liðinum. Í stöðunni 29-32 settu Stjörnumenn allt í gang, skoruðu 20 stig í röð og breyttu stöðunni í 29-52 á rétt um fjórum mínutum. Má segja að þetta hafi gert útslagið því Stjörnumenn náðu að halda Haukum í þægilegri fjarlægð þrátt fyrir gott áhlaup heimamanna. Haukar náðu minnst að minnka muninn í 10 stig en nær komust þeir ekki.
Haukur Óskarsson gerði 20 stig í liði Hauka og Arryon Williams bætti við 15 stigum og 8 fráköstum. Hjá Stjörnunni var Dagur Kár Jónsson atkvæðamestur með 20 stig og Justin Shouse skoraði 19 og Brian Mills mætti með myndarlega tvennu, 17 stig og 17 fráköst.
Keflavík 93-88 Njarðvík
Darrel Lewis gerði 30 stig og tók 7 fráköst í Keflavíkurliðinu og þá var Magnús Þór Gunnarsson með 18 stig og Valur Orri Valsson bætti við 17. hjá Njarðvík var Jeron Belin með 31 stig, Ágúst Orrason 17 og Friðrik Stefánsson gerði 6 stig og tók 11 fráköst.
Mynd úr safni/ Dagur Kár Jónsson var stigahæstur þegar Stjarnan vann 15 stiga sigur á Haukum í kvöld.






