Þriðju umferð í Iceland Express deild kvenna lauk í kvöld með þremur leikjum þar sem Íslands- og bikarmeistarar Keflavíkur unnu öruggan sigur í Vodafone-höllinni, Fjölnir vann Hauka 81-84 að Ásvöllum og í Hveragerði höfðu Njarðvíkingar sigur gegn Hamri.
Úrslit kvöldsins:
Valur 70-84 Keflavík
Pálína Gunnlaugsdóttir var stigahæst í liði Keflavíkur með 27 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar og Jaleesa Butler bætti við 15 stigum, 15 fráköstum og 7 stoðsendingum. Hjá Val var Kristrún Sigurjónsdóttir með 23 stig, 10 fráköst og 5 stoðsendingar og María Ben Erlingsdóttir bætti við 12 stigum og 5 fráköstum.
Haukar 81-84 Fjölnir
Brittney Jones gerði 34 stig, tók 5 fráköst og gaf 9 stoðsendingar í liði Fjölnis. Katina Mandylaris bætti við 20 stigum og 14 fráköstum og þá var Birna Eiríksdóttir með 18 stig. Hjá Haukum voru þrír leikmenn jafnir og stigahæstir með 18 stig, Jence Rhoads, Íris Sverrisdóttir og Hope Elam. Margrét Rósa Hálfdánardóttir bætti svo við 17 stigum.
Hamar 72-91 Njarðvík
Tölfræði ekki aðgengileg




