KR-ingar styrktu stöðu sína á toppi Bónus deildar karla í kvöld þegar þeir lögðu Álftanes að velli, 102–94, í háspennuleik í Kaldalónshöllinni þar sem Vesturbæingar stóðust áhlaup heimamanna á lokakaflanum og fögnuðu sínum fimmta sigri í röð.
Í spilaranum hér að neðan má sjá viðtal við Þóri Guðmund Þorbjarnarson, leikmann KR, sem fór á kostum í leikstjórnandahlutverkinu og skilaði tvennu með 15 stigum og 10 stoðsendingum.




