Einum leik er lokið í B-riðli í Iceland Express deild kvenna í dag. Þá mættust í botnslag riðilsins Grindavík og Fjölnir þar sem Grindvíkingar skelltu gestum sínum 82-51 í Röstinni. Janese Banks fór mikinn í liði Grindavíkur með 31 stig og 11 fráköst.
Fjölniskonur léku án Natöshu Harris sem er frá vegna meiðsla sem hún hlaut í Njarðvíkurleiknum á dögunum er hún lenti í samstuði við Juliu Demirer leikmann Njarðvíkinga. Þær Inga Buzoka og Bergþóra Tómasdóttir voru stigahæstar hjá Fjölni í dag, báðar með 19 stig og Buzoka bætti við 16 fráköstum.
Með sigrinum í dag er Grindavík komið upp í 3. sæti í B-riðli með 8 stig en Fjölnir er á botni riðilsins með 6 stig.





