spot_img
HomeFréttirÚrslit: Belfius Mons með þægilegan sigur í DHL Höllinni

Úrslit: Belfius Mons með þægilegan sigur í DHL Höllinni

KR tapaði sínum fyrsta leik í Eurocup í kvöld. Eftir fyrri hálfleik þar sem hraðinn var lítill og vörnin meira í aðalhlutverki þá keyrðu Belgarnir upp hraðann í 3. leikhluta og náðu góðu forskoti sem þeir létu ekki af hendi. Lokatölur 67 – 88.

 

 

Jalen Jenkins var langatkvæðamestur KR-inga með 22 stig og 16 fráköst. Hjá Belfius Mons var Tre Demps atkvæðamestur með 27 stig og 6 fráköst. Einnig var Garlon Green sterkur með 23 stig.

 

Seinni leikurinn verður 26. september í Belgíu.

 

Tölfræði leiksins

 

 

Fréttir
- Auglýsing -