HomeFréttirUppgjör búðanna hjá Ágústi í Vodafonehöllinni

Uppgjör búðanna hjá Ágústi í Vodafonehöllinni

 
Hinar vinsælu æfingabúðir Ágústs Björgvinssonar fóru fram í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda 6. til 10. júní. Vodafonehöllin er eitt glæsilegasta íþróttahús landsins og aðstaðan þar góð, en alls eru 22 körfur í húsinu og því möguleiki á að spila á 6 völlum í einu.
Búðirnar hafa verið haldnar frá árinu 2001 og eru því 10 ára í ár. Á þessum 10 árum hafa yfir eitt þúsund leikmenn sótt þær. Metþátttaka var í júní 2008 þegar rúmlega 140 leikmenn sóttu búðirnar sem þá voru haldnar í DHL-höllinni. Um 50 leikmenn frá 14 félögum mættu í ár. Frá kl. 16:00 til 17:00 á hverjum degi var frjáls tími sem sumir þátttakendur nýttu sér vel og fengu ábendingar frá þjálfurum. Frá kl. 17:00 til 19:15 fóru leikmenn í gegnum sex stöðvar undir handleiðslu þjálfara. Síðan var körfuknattleikur leikin til kl. 20:30. Síðan endaði hver dagur endaði með gullmolum frá þjálfurum og/eða gestum.
 
Lokadaginn var keppt í 1 á 1 keppni og skotkeppni en nánara uppgjör á búðunum má sjá hér.
Fréttir
- Auglýsing -