Fjölnir vekur athygli á því á samfélagsmiðlum að meistaraflokkur karla tefldi fram nánast eingöngu uppöldum leikmönnum í sigrinum gegn Hamri í Dalhúsum í 1. deildinni í gærkvöldi.
Allir leikmenn á leikskýrslu félagsins voru uppaldir í Grafarvogi að einum undanskildum, miðherjanum Lewis Diankulu, sem hefur þó leikið með liðinu óslitið síðan árið 2022.
Sömu sögu er að segja af kvennaliði félagsins í Bónus deildinni, en átta af tíu leikmönnum á leikskýrslu í opnunarleiknum gegn Haukum voru uppaldar Fjölniskonur.
Forráðamenn Fjölnis segja þetta endurspegla skýra stefnu deildarinnar um að gefa ungu heimafólki traust, tækifæri og spilatíma á stærsta sviðinu.




