Undir 16 ára lið Íslands tapaði fyrir Danmörku leik með 62 stigum gegn 86. Leikurinn var sá fimmti og síðasti Norðurlandamóts þessa árs.
Fyrri hálfleikur leiksins var jafn og spennandi. Eftir 1. leikhlutann var Ísland með yfirhöndina 16-11, en þegar að liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik voru það frændur vorir sem voru búnir að taka framúr, 27-34.
Atkvæðamest íslensku stúlknanna var Thoranna Kika Hodge Carr með 12 stig og 6 fráköst.
Í seinni hálfleiknum voru þær dönsku þó fljótar að rífa sig frá íslenska liðinu. 3. leikhlutann sigruðu þær með 28 stigum gegn 8 (35-60), munurinn því kominn í ein 25 stig fyrir lokaleikhluta leiksins.
Þann 4. vann Ísland þó, en aðeins með 1. stigi, 27-26 og endaði leikurinn því með 24 stiga sigri norðurlandameistarana frá Danmörku.
Áðurnefndur leikmaður Íslands, Þóranna Kika Hodge Carr, var atkvæðamest með 17 stig, 9 fráköst og 4 stoðsendingar.
Umfjöllun, myndir & viðtöl / Davíð Eldur




