HomeFréttirUndir 16 ára lið karla tapaði fyrir Danmörku í naglbít

Undir 16 ára lið karla tapaði fyrir Danmörku í naglbít

Undir 16 ára lið Íslands tapaði fyrir Danmörku í framlengdum leik með 95 stigum gegn 82. Leikurinn var sá fimmti og síðasti Norðurlandamóts þessa árs.

 

 

Fyrri hálfleikur leiksins var jafn og spennandi að mestu þó svo að Danmörk hafi verið skrefinu á undan. Eftir 1. leikhluta var staðan 23-19 fyrir Danmörk, og þegar dómarinn flautaði í hálfleik var munur þeirra kominn í 7 stig, 41-34. Ísland aldrei langt undan, þökk var að mestu tilþrifum leikstjórnanda íslenska liðsins, Gabríel Möllers, en hann setti ein 16 stig (5/8 af vellinum) í fyrri hálfleiknum.

 

Einhver hefur ræðan verið frá þjálfara liðsins í hálfleik, því eftir hléið mætti íslenska liðið mun betur stemmdara til leiks og undir lok hlutans voru þeir komnir með nauma tveggja stiga forystu.

 

Í fjórða leikhlutanum hélt liðið svo áfram að byggja ofan á þá forystu og voru á tímabili komnir einum 10 stigum yfir. Lok venjulegs leiktíma þessa leiks hlýtur þó að vera eitthvað sem leikmenn, forráðamenn og aðdáendur íslenska liðsins vilja gleyma sem fyrst, því þeir hreinlega köstuðu frá sér forystunni og misstu leikinn í framlengingu (78-78). Heppnir í raun að tapa honum ekki á lokametrunum (sem voru allir festir á filmu af hjá okkur og verða vonandi aðgengilegir með kvöldinu)

 

Í framlengingunni var liðið ekki einusinni líkt því liði sem hafði spilað seinni hálfleik leiksins svo vel. Því fór sem fór, að leikurinn endaði í sannfærandi 13 stiga sigri Danmerkur, 95-82, þar sem að Ísland tapaði framlengingunni stórt, 17-4.

 

Áðurnefndur leikstjórnandi Íslands, Gabríel Möller, átti þó hreint magnaðan dag með 36 stig (14/24 af vellinum), 4 fráköst, 3 stoðsendingar og 2 stolna bolta. Svakaleg frammistaða sem drengurinn fylgdi svo eftir með að taka fram eftir leik að hann hefði miklu frekar viljað sjá liðið sitt vinna heldur en að ná slíkum einstaklingshæðum, við virðum það við hann.

 

Umfjöllun, myndir & viðtöl / Davíð Eldur

 

Myndir

Fréttir
- Auglýsing -