Snæfell lét það ekkert á sig fá og fóru með öruggan 59-68 sigur úr Hafnarfirðinum.
Byrjunarlið Snæfells: Hildur Björg Kjartansdóttir, Hildur Sigurðardóttir, Helga Hjördís Björgvinsdóttir, Berglind Gunnarsdótti og Alda Leif Jónsdóttir.
Haukar byrjuðu leikinn betur og komust í 7-2 á upphafsmínutum leiksins. Eftir það komst Snæfell í gang, sérstaklega vegna þess að þær fóru að taka hvert sóknarfrákastið á fætur öðru og þar var Hildur Björg fremst í flokki. Snæfell yfirspiluðu Hauka 7-17 á rúmlega fimm mínutna kafla en þá svöruðu Haukar aðeins fyrir sig og leikhlutinn endaði 19-20 fyrir Snæfell.
Snæfell byrjaði annan leikhlutann af krafti og voru duglegar að keyra inn í teiginn, fá tvídekkun og senda þá á opna manninn á blokkinni sem fékk annað hvort opið skot eða sniðskot. Hildur Sigurðar fór þar mikinn og komust þær mest í 12 stigum yfir í stöðunni 27-39. Vörn Hauka tók þá aðeins við sér og fóru þær að stöðva sóknarfráköstin hjá Snæfell. Við það kveiknði smá neisti í sókninni og náðu þær að laga stöðuna og enduðu fyrri hálfleik sex stigum undir, 35-41.
Stigahæstar í hálfleik hjá Haukum voru Siarre Evans með 13 stig og 8 fráköst og Dagbjört Samúelsdóttir með 9 stig. Hjá Snæfelli voru það nöfnurnar Hildur Björg Kjartansdóttir með 12 stig og 7 fráköst og Hildur Sigurðardóttir með 12 stig, 4 fráköst og 3 stoðsendingar.
Það var greinilegt að Bjarni Magnússon hafi lesið vel yfir Haukastúlkum í hálfleiknum því þær komu mjög vel stefndar til leiks í seinnihálfleik og spiluðu góða pressuvörn og stigu mjög vel út í fráköstum. Þær tóku 11-0 rispu og komust fimm stigum yfir. Snæfell vaknaði þá aftur til lífsins og setti Alda Leif Jónsdóttir tvær mikilvægar þriggjastiga körfur á lokamínutum þriðja leikhluta og kom Snæfell yfir.
Það tók liðin tvær og hálfa mínutu að skora í fjórða leikhluta en Hildur Sigurðardóttir braut ísinn með góðum þrist sem Margrét Rósa Hálfdanardóttir svaraði strax með eigin þrist í næstu sókn. Snæfell kom sér í stöðuna 55-59 þökk sé sóknarfráköstum. Stigalaus kafli tók við hjá báðum liðum sem stóð yfir í rúmar þrjár mínutur eða þangar til Berglind Gunnarsdóttir setti rándýran þrist þegar 1.15 mínutur voru eftir og kom Snæfelli 7 stigum yfir. Haukar byrjuðu að brjóta til að eiga einhvern möguleika en það dugði skammt því þæði voru ennþá þrjár villur í bónusinn og þegar Snæfell komst loksins á vítalínuna settu þær öll átta vítin niður.
Snæfell vann því góðan 59-68 sigur að hólmi og ekki var að sjá að það vantaði hjá þeim stiga- og frákastahæsta leikmanninn þeirra.
Stigahæstar hjá Haukum: Siarre Evans 17 stig/16 fráköst, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 17 stig/8 fráköst, Dagbjört Samúelsdóttir 11 stig/1 frákast, Jóhanna Björk Sveindóttir 8 stig/9 fráköst og Gunnhildur Gunnarsdóttir 6 stig/4 fráköst.
Stigahæstar hjá Snæfell: Hildur Sigurðardóttir 17 stig/7 fráköst, Hildur Björg Kjartansdóttir 16 stig/19 fráköst (þar af 11 sóknarfráköst), Berglind Gunnarsdóttir 14 stig/6 fráköst, Alda Leif Jónsdóttir 12 stig/9 fráköst/7 stoðsendingar, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 9 stig/11 fráköst.
Maður leiksins: Hildur Björg Kjartansdóttir




