spot_img
HomeFréttirUm 300 myndasöfn eftir veturinn

Um 300 myndasöfn eftir veturinn

Körfuboltavertíðinni hérlendis er lokið eins og við þekkjum hana. Einhverjir féllu, aðrir komust upp, sumir urðu meistarar og þannig gengur þetta fyrir sig ár eftir ár.
Nú síðar á árinu verður Karfan.is átta ára gömul og í þessi tæpu átta ár skipta myndirnar frá íslenskum körfuknattleik orðið tugum þúsunda. Myndasöfnin frá nýlokinni leiktíð eru næstum því 300 talsins og hér í meðfylgjandi myndbandi að neðan eru svipmyndir frá vetrinum með stuttu innslagi frá Green Day. Við gerum þeirra orð að okkar um leið og við þökkum fyrir leiktíðina:
 
 
„For what it´s worth it was worth all the while“
 
 
 
Fréttir
- Auglýsing -