HomeFréttirU20 landsliðið einum sigri frá A-deildinni eftir glæsilegan sigur

U20 landsliðið einum sigri frá A-deildinni eftir glæsilegan sigur

Íslenska U20 landsliðið í körfubolta karla hefur tryggt sér sæti í undanúrslitum B-deildar Evrópumótsins eftir frábæran 76-79 sigur gegn sterkum Búlgurum í átta liða úrslitum.

Íslenska liðið hóf leikinn af miklum krafti og leiddi með sex stigum eftir fyrsta leikhluta, 24-18, en Búlgariar svöruðu fyrir sig í öðrum leikhluta og leiddu með tveimur stigum í hálfleik, 42-40.

Jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik og spennan náði hámarki á lokamínútunum þegar Búlgaría komst yfir, 76-75, þegar tæpar tvær mínútur lifðu leiks.

Kristófer Björgvinsson reyndist hins vegar hetja Íslendinga á lokasprettinum; hann svaraði strax með körfu og þegar 20 sekúndur voru eftir sýndi hann fádæma yfirvegun þegar hann setti niður tvö mikilvæg vítaskot í stöðunni 76-79. Búlgörum tókst ekki að nýta lokasókn sína þar sem þriggja stiga skot þeirra geigaði á lokasekúndunum og fagnaðarlæti Íslendinga brutust út.

Strákarnir okkar mæta Svíum í undanúrslitum á morgun og er mikið í húfi, en efstu þrjú lið mótsins vinna sér inn sæti í A-deildinni.

Íslenska liðið komst í átta liða úrslitin þrátt fyrir tap gegn Bosníu/Hersegóvínu í lokaleik riðlakeppninnar, en þeir bættu rækilega upp fyrir það með þessum glæsilega sigri.

Atkvæðamestir í íslenska liðinu voru Lars Bragason, sem fór fremstur í flokki með 27 stig, og Kristófer Björgvinsson sem fylgdi honum fast eftir með 22 stig og tryggði sigurinn undir lokin.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -