U18 landslið kvenna í körfuknattleik er haldið til Rúmeníu þar sem liðið tekur þátt í B-deild Evrópumótsins (EuroBasket). Mótið fer fram í borginni Tulcea og leikur íslenska liðið í A-riðli keppninnar.
Íslenska liðið mætir heimakonum í Rúmeníu í fyrsta leik sínum, en leikjadagskrá Íslands í riðlakeppninni er eftirfarandi (tímasetningar miðast við íslenskan tíma):
1. ágúst kl. 15:30: Ísland – Rúmenía
2. ágúst kl. 10:30: Ísland – Portúgal
4. ágúst kl. 10:30: Ísland – Holland
5. ágúst kl. 13:00: Ísland – Aserbaídsjan
Að lokinni riðlakeppninni tekur við átta liða útsláttarkeppni ásamt umspilsleikjum um 9.–20. sæti. Útsláttar- og umspilsleikirnir hefjast föstudaginn 7. ágúst og lýkur mótinu sunnudaginn 9. ágúst.
Leikmannahópur og þjálfarateymi
Aðalþjálfari liðsins er Emil Barja og honum til aðstoðar eru þær Margrét Ósk Einarsdóttir og Inga Fríða Ingvarsdóttir.
Leikmannahópur Íslands er skipaður tólf leikmönnum úr ýmsum félagsliðum. Arnheiður Ólafsdóttir kemur frá Haukum, Berta María Þorkelsdóttir frá Val og Brynja Benediktsdóttir frá Ármann. Þá eiga Njarðvíkingar fjóra fulltrúa í hópnum; þær Huldu Maríu Agnarsdóttur, Ingu Leu Ingadóttur, Kristínu Björk Guðjónsdóttur og Söru Björk Logadóttur. Fjölnir á tvo fulltrúa, þær Hörpu Karítas Kjartansdóttur og Katlu Guðjónsdóttur. Þá eru Rebekka Rut Steingrímsdóttir úr KR, Sigrún Sól Brjánsdóttir úr Stjörnunni og Þórey Tea Þorleifsdóttir úr Grindavík einnig í trópnum.
Öllum leikjum mótsins verður streymt beint á opinberri heimasíðu keppninnar hjá FIBA, þar sem einnig má finna ítarlegri upplýsingar, myndir og leikjaplan.



