HomeFréttirU16 í eldlínunni í dag: Ísland mætir Noregi

U16 í eldlínunni í dag: Ísland mætir Noregi

Norðurlandamótið í Finnlandi brestur á í dag og það er strax stórleikur fram undan hjá yngri landsliðum Íslands. Bæði undir 16 ára lið stúlkna og drengja mæta Noregi í fyrstu leikjum sínum á mótinu í Kisakallio.

U16 stúlkurnar ríða á vaðið í fyrramálið, en flautað verður til leiks gegn Noregi klukkan 11:10 á íslenskum tíma.

Strákarnir mæta svo til leiks síðdegis og hefja þeir leik gegn Norðmönnum klukkan 16:40. Beinar útsendingar verða aðgengilegar á netinu fyrir þá sem vilja fylgjast með og hvetja krakkana til sigurs að heiman.

Hérna er hægt að kaupa aðgang að beinu vefstreymi frá mótinu

Hérna eru hópar undir 16 ára liða og upplýsingar um aðra leiki

Lifandi tölfræði og stöðutafla – Stúlkur U16 / Drengir U16

Fréttir
- Auglýsing -