HomeFréttirÍslensku liðin mætt til Kisakallio – Dagskrá NM 2024

Íslensku liðin mætt til Kisakallio – Dagskrá NM 2024

Undir 16 ára lið stúlkna og drengja frá Íslandi eru mætt til Kisakallio í Finnlandi þar sem þau munu næstu vikuna taka þátt í Norðurlandamóti.

Það er skammt stórra högga á milli og er mikil eftirvænting í hópnum, en fyrstu leikir beggja liða fara fram strax á morgun, föstudaginn 3. júlí, þar sem Ísland mætir Noregi. Stelpurnar ríða á vaðið fyrir hádegi og strákarnir fylgja í kjölfarið síðdegis.

Hér fyrir neðan má sjá leikjadagskrána, skipan hópa og upplýsingar um beint vefstreymi.

Leikjadagskrá (á íslenskum tíma)

DagsetningU16 stúlkurU16 drengir
Föstudagur 3. júlíNoregur vs. Ísland – kl. 11:10Noregur vs. Ísland – kl. 16:40
Laugardagur 4. júlíSvíþjóð vs. Ísland – kl. 13:40Svíþjóð vs. Ísland – kl. 16:25
Sunnudagur 5. júlíÍsland vs. Eistland – kl. 11:10Ísland vs. Eistland – kl. 16:40
Þriðjudagur 7. júlíÍsland vs. Danmörk – kl. 11:10Ísland vs. Danmörk – kl. 13:55
Miðvikudagur 8. júlíFinnland vs. Ísland – kl. 12:10Finnland vs. Ísland – kl. 11:55

Leikmannahópar Íslands

U16 stúlkur

  • Björk Karlsdóttir – Keflavík
  • Dagbjört Dóra Kristmannsdóttir – Njarðvík
  • Elva Björg Ragnarsdóttir – Keflavík
  • Eva Bryndís Ingaóttir – Haukar
  • Eva Ingibjörg Óladóttir – Stjarnan
  • Heiðrún Lind Sævarsdóttir – Keflavík
  • Hildur E. Kristinsdóttir – Haukar
  • Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir – Keflavík
  • Lísbet Lóa Sigfúsdóttir – Keflavík
  • Margrét Dúna Guðmundsdóttir – Breiðablik
  • Oddný Hulda Einarsdóttir – Keflavík
  • Valdís Helga Alexandersdóttir – Snæfell
  • Þjálfari: Hákon Hjartarson
  • Aðstoðarþjálfarar: Bruno Richotti og Embla Ásgeirsdóttir

U16 drengir

  • Arnar Freyr Elvarsson – Keflavík
  • Árni Atlason – Breiðablik
  • Atli Freyr Haraldsson Katrínarson – Valur
  • Baltasar Torfi Hlynsson – Stjarnan
  • Davíð Breki Antonsson – Keflavík
  • Hlynur Ingi Finnsson – Sindri
  • Jón Breki Sigurðarson – Stjarnan
  • Kormákur Nói Jack – Stjarnan
  • Kristinn Sturluson – Stjarnan
  • Sigurður Karl Guðnason – Keflavík
  • Sindri Logason – Haukar
  • Úlfur Týr Ágústsson – Stjarnan
  • Þjálfari: Dino Stipcic
  • Aðstoðarþjálfarar: Sigurður Friðrik Gunnarsson og Ögmundur Árni Sveinsson

Beint vefstreymi frá mótinu

Fyrir þá sem vilja hvetja krakkana áfram að heiman er frábært tækifæri til að kaupa aðgang að beinu vefstreymi. Í boði er pakki sem veitir aðgang að öllum leikjum mótsins.

Hérna er hægt að kaupa aðgang að beinu vefstreymi frá mótinu

Fréttir
- Auglýsing -