spot_img
HomeFréttirU 20: Sigurlausir í milliriðlana

U 20: Sigurlausir í milliriðlana

{mosimage}

(Daníel Guðmundsson til varnar)

Ísland kláraði riðlakeppnina án sigurs þegar ísland tapaði fyrir Finnlandi 61-100. Leikurinn skipti engu máli því aðrir leikir í riðlinum fóru þannig að Ísland yrði alltaf í 4. sæti í riðlinum. Eins og í fyrri leikjunum var íslenska liðið í villuvandræðum og setti það mark á leikinn.  

Einungis tveir leikmenn íslenska liðsins skoruðu meira en 10 stig í leiknum Kristján með 20 stig og Jóhann með 13 stig. Pavel var með 10 fráköst, Alexander 7 og Birgir 6. Enn og aftur voru það tapaðir boltar sem settu stórt strik í stigareikningin þar sem Ísland var með 28 á móti 10. Í milliriðlinum mætir U 20 ára liðið Írlandi, Slóvakíu og heimamönnum í Portúgal.

Leikir Portúgalska liðsins hafa verið sýndir beint í sjónvarpi svo líkur eru á að íslenska liðið gæti verið á leið í sjónvarpsleik hér í Portúgal. 

Í dag er frídagur og verður hann notaður í slökun og endurskipulagningu á leik íslenska liðsins. Næsti leikur er á morgunn kl. 15:15 að íslenskum tíma á móti Slóvakíu.

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -