Landsliðsbakvörðurinn Elvar Már Friðriksson fór vel af stað persónulega með liði sínu Neptunas í dag þótt liðið hafi mátt þola þungt tap, 69–93, gegn stórliðinu Zalgiris Kaunas í opnunarleik sínum í litháensku úrvalsdeildinni.
Elvar Már, sem gekk til liðs við Neptunas frá spænska félaginu Tenerife í sumar, var stigahæsti leikmaður síns liðs í leiknum en hann skoraði 17 stig ásamt því að gefa sex stoðsendingar í fyrsta leik liðsins á leiktíðinni. Þrátt fyrir fína innkomu Elvars reyndust meistararnir í Zalgiris of stór biti og fóru með öruggan 24 stiga sigur af hólmi.




