spot_img
HomeFréttirU 20: Sárt tap gegn Georgíu

U 20: Sárt tap gegn Georgíu

{mosimage}

 

Ísland tapaði fyrir Georgíu í gær 89-80 eftir að hafa verið tveimur stigum yfir eftir 3 leikhluta. Íslenska liðið lenti mest 14 stigum undir í öðrum leikhluta 40-26 þegar um 6 mínútur voru eftir af öðrum. Eftir hetjulega barráttu í seinni hluta annars og allan þriðja leikhluta dró úr íslenska liðinu og tapaðist fjórði leikhlutinn 29-18.  

Einhvern vegin æxlaðist það í öllum fjórum leikhlutunum að Georgía skoraði flautukörfur, 3ja stiga flautukörfur í fyrstu þemur leikhlutunum og eina tveggja stiga í lok fjórða. Þessar körfur geta verið dýrkeyptar þegar upp er staðið því nú þarf íslenska landsliðið að vinna Finna með 13 stigum til að komast í efri hluta mótsins.  

Bestir í íslenska liðnu í gær voru Pavel og Jóhann. Pavel var með 23 stig, 15 fráköst og 7 stoðsendingar. Jóhann var með 27 stig og 8 fráköst. Aðrir leikmenn sem komu við sögu í leiknum stóðu sig vel og má þar nefna Steina í Val, Alla Dungal í FSU, Darri stóð fyrir sínu þó hann væri slæmur í baki en lét það ekki á sig fá þegar þjálfarinn setti hann inn á, Kristján var í ósanngjörnum villuvandræðum og náði sér aldrei í takt við leikinn. 

Næsti leikur íslenska liðsins er á móti Finnum og jafnframt sá seinasti í riðlinum. Leikurinn hefst í dag, sunnudaginn 16. júlí kl. 20:15

 

Tölfræði leiksins

 

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -