spot_img
HomeFréttirU 18: Tap gegn Lettum

U 18: Tap gegn Lettum

{mosimage}

(Brynjar Björnsson) 

Strákarnir í U18 hófu leik í milliriðli í gær og máttu þola tap fyrir öflugum Lettum, 78-98. Lettar sýndu skemmtileg tilþrif oft á tíðum og eiga nokkra frábæra bakverði sem fóru oft illa með íslensku strákana. 

Munurinn var 13 stig í fjórða leikhluta en í lokin bættu Lettar við muninn. Hittni þeirra var með afbrigðum góð og kunna þeir að hreyfa sig án boltans. Jafnræði var með liðunum inni í teig og er ekki oft sem íslenska liðið þarf að játa sig sigrað í hröðum og skemmtilegum leik þar sem bakverðirnir eru í aðalhlutverki. 

Brynjar Björnsson fór fyrir strákunum í sókninni með 21 stig og komu þeir Þröstur Jóhannsson, Hjörtur Einarsson og Hörður Axel Vilhjálmsson næstir þar á eftir með 14 hver. Hörður Axel er ennþá að glíma við meiðsli á hné og var með 11 tapaða bolta og á íslenska liðið hann inni. Strákurinn hefur engu að síður vakið athygli á mótinu og hafa komið fyrirspurnir frá háskólum í Bandaríkjunum.

Frétt af www.kki.is

Mynd af www.fibaeurope.com

Fréttir
- Auglýsing -