spot_img
HomeFréttirU 18: 15 stiga sigur á Makedóníu

U 18: 15 stiga sigur á Makedóníu

{mosimage}

(Helena átti góðan leik í gær, hér er hún í leik gegn ÍS á síðasta tímabili) 

Stelpurnar í 18 ára landsliðinu unnu auðveldan 15 stiga sigur, 65-50, á Makedóníu í þriðja leik sínum í milliriðli Evrópumótsins í Chieti á Ítaliu. Íslenska liðið komst í 18-2 eftir aðeins rúmar fimm mínútur og eftir það var leikurinn í öruggum höndum íslenska liðsins. Ísland er í 2. sæti eftir 3 umferðir af 5 en spilað er um 9. til 14. sæti í riðlinum. Helena Sverrisdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 21 stig en hún lék ýmist sem leikstjórnandi eða miðherji sem ruglaði makedónsku stelpurnar oft í ríminu.

Íslenska liðið var ekkert að svekkja sig yfir ósanngjörnum endi gegn Portúgal daginn áður og eftir 5 mínutur og 22 sekúndur var staðan orðin 18-2 fyrir Ísland. Bryndís Guðmundsdóttir var í miklu stuði í fyrsta leikhlutanum og skoraði alls 11 stig í honum (3 þristar) og Ísland hafði yfir 27-10 eftir fyrstu 10 mínúturnar. Ísland var 13 stigum yfir í hálfleik, 43-30, og var með 22 stiga forskot fyrir lokaleikhlutann, 59-37. Helena Sverrisdóttir sýndi fjölhæfni sina með þvi að spila ýmist í stöðu leikstjórnanda eða miðherja en hún hefur nú skorað 128 stig á mótinu (21,3 í leik) og er önnur stigahæst af öllum leikmönnum í Chieti.

Unndór Sigurðsson, þjálfari íslenska liðsins, leyfði öllum stelpunum að spila og léku þær á bilinu 18 til 27 mínútur í leiknum nema að Ingibjorg Elva lék aðeins í 8 mínútur þar sem hún er að vinna sig út úr meiðslum. Lykilmenn fengu nauðsynlega hvíld fyrir lokaátökin en íslenska liðið fær frí í dag en spilar síðan tvo síðustu leiki sina gegn Finnlandi (á laugardag) og Írlandi (á sunnudag). Írar unnu Finna með tíu stigum í gær, 64-54. Bæði Lettland og Ukraína, liðin sem voru með Íslandi í riðli, komust í undanúrslitin sem fara fram á laugardaginn.

Atkvæðamestar hjá íslenska liðinu gegn Makedóníu:
Helena Sverrisdóttir 21 stig (8 fráköst, 6 stolnir, 5 stoðsendingar)
Bryndís Guðmundsdóttir 16 stig (9 fráköst, 3 stolnir, 3 stoðsendingar, hitti úr 4 af 6 þriggja stiga skotum)
Unnur Tara Jónsdóttir 8 stig (9 fráköst)
Hrönn Þorgrimsdóttir 7 stig (4 fráköst)
María Ben Erlingsdóttir 6 stig (4 fráköst)
Bára Bragadóttir 3 stig (3 stoðsendingar)
Sigrún Ámundadóttir 2 stig (4 fráköst)
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 2 stig (3 fráköst, 2 stoðsendingar, 8 minutur)
Margrét Kara Sturludóttir (5 fráköst, 2 varin) og Berglind Anna Magnúsdóttir (2 stolnir) spiluðu lika en skoruðu ekki.

Frétt af www.kki.is

Mynd: Gunnar Freyr – [email protected]

 

Fréttir
- Auglýsing -