spot_img
HomeFréttirTveir leikir í Lýsingarbikarnum í kvöld

Tveir leikir í Lýsingarbikarnum í kvöld

13:34 

{mosimage}

 

 

Tveir leikir fara fram í Lýsingarbikarkeppni karla og kvenna í körfuknattleik í kvöld. Báðir hefjast leikirnir kl. 19:15.

 

Í Grindavík taka heimamenn á móti hinu margumtalaða liði KR B(umban) í 8-liða úrslitum karla. KR B hefur fengið til liðs við sig bandaríska leikmanninn Ben Jacobson. Ben átti farsælan feril með Northern Iowa háskólaliðinu og var einn af 50 leikmönnum í bandaríska háskólaboltanum sem tilnefndur voru til Wooden verðlaunanna sem leikmaður ársins fyrir síðasta keppnistímabil. Grindvíkingar eiga titil að verja en þeir lögðu Keflavík í Bikarúrslitum í fyrra.

 

Keflavíkurkonur taka á móti Breiðablik í Sláturhúsinu en Blikar eru á botni Iceland Express deildarinnar svo mikið má út af bregða ef Keflavíkurkonur ná ekki inn í undanúrslitin.

 

8-liða úrslitum lýkur á morgun með tveimur leikjum.

Þriðjudagur 9. janúar 2007
Lýsingarbikar karla Iða 19.15 FSu – Keflavík – karlar
Lýsingarbikar karla Seljaskóli 19.15 ÍR – Skallagrímur – karlar

Fréttir
- Auglýsing -