spot_img
HomeFréttirTuomi og Ross til liðs við Hamar

Tuomi og Ross til liðs við Hamar

 
Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahóp Hamars í kvennakörfunni frá síðasta tímabili og þar er samt engan bilbug að finna hjá forráðamönnum deildarinnar. Búið er að semja við tvo sterka bandaríska leikmenn fyrir átök vetrarins. Þær Hannah Tuomi og Jaleesa Ross eru væntanlegar til landsins í byrjun September.
Hanna Tuomi kemur úr Vanderbilt háskólanum og leikur í stöðu miðherja. Hún skoraði 11,2 stig og var með 6 fráköst á lokaárinu sínu í skóla ásamt því að vera með 60% nýtingu í 2 stiga skotum. Hannah Tuomi þykir mikill leiðtogi og var hún ein af þremur fyrirliðum Vanderbilt skólans.
 
Jaleesa Ross kemur kemur úr Fresno St. og getur bæði spilað sem leikstjórnandi og skotbarkvörður. Jaleesa skorði 16,3 stig var með 4,6 fráköst og gaf 3,8 stoðsendingar ásamt því að stela 2,1 bolta á lokaárinu sínu í Fresno St. Jaleesa þykir góður varnarmaður og góð þriggjastiga skytta. Hún var valinn varnarmaður ársins í sinni deild tímabilið 2009-2010.
 
Það er ljóst að nýr þjálfari Hamars, Lárus Jónsson á mikið verk að vinna við að slípa til nýtt lið í vetur. Frá síðasta vetri eru farnar á braut þær Kristrún Sigurjóns, Guðbjörg Sverris og Þórunn Bjarnadóttir sem skiptu allar í Val á eftir Ágústi Björgvins sem tók við þjálfun Hlíðarenda-kvenna. Einnig mun Íris Ársgeirsdóttir halda utan á næstu dögum í sjálfboðaliðsstarf á vegum Rauðakrossins og verður aftur kominn í körfuboltaskóna í nóvember á þessu ári. Fanney Guðmundsóttir hefur svo að lokum samið við franska liðið Union Sportive de La Glacerie sem spilar í NF2-deildinni þar í landi og verður án efa ævintýri fyrir okkar konu og óskum við henni góðs gengis í Frakklandi. Álfhildur Þorsteins og Sóley Guðgeirs hafa tekið fram skóna að nýju og munu þær koma með dýrmæta reynslu inn í hópinn auk þess sem yngri stelpurnar í hópnum eru ári eldri en í fyrra og fá núna mikilvægar mínútur í efstu deild þar sem þær ætla sér að vera verðugir fulltrúar sunnlenskrar kvennakörfu í vetur.
 
Anton Tómasson

Fréttir
- Auglýsing -