spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær og Zaragoza töpuðu fyrir Urbas Fuenlabrada

Tryggvi Snær og Zaragoza töpuðu fyrir Urbas Fuenlabrada

Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tap í dag fyrir Urbas Fuenlabrada í ACB deildinni á Spáni, 74-85.

Zaragoza er eftir leikinn í 16. sæti deildarinnar með fjóra sigra og 9 töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 12 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær tveimur fráköstum.

Næsti leikur Tryggva og Zaragoza í deildinni er þann 18. desember gegn Morabanc Andorra.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -