spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær og Zaragoza máttu þola tap í Madríd

Tryggvi Snær og Zaragoza máttu þola tap í Madríd

Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza töpuðu í kvöld fyrir Urbas Fuenlabrada í ACB deildinni á Spáni, 77-55.

Eftir leikinn eru Zaragoza í 13. sæti deildarinnar með sjö sigra og tólf töp það sem af er tímabili.

Tryggvi hafði hægt um sig í stigaskorun í leiknum, en á 10 mínútum spiluðum skilaði hann tveimur fráköstum og stolnum bolta.

Næsti leikur Tryggva og Zaragoza er þann 5. febrúar gegn Malaga.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -