spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær og Zaragoza máttu þola tap í Europe Cup

Tryggvi Snær og Zaragoza máttu þola tap í Europe Cup

Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza töpuðu í kvöld með sex stigum fyrir Avtodor Saratov í FIBA Europe Cup, 86-92.

Eftir leikinn eru Zaragoza í 3. sæti D riðils með einn sigur og þrjú töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 30 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi 6 stigum, 6 fráköstum, stoðsendingu og 3 vörðum skotum

Næsti leikur Zaragoza í keppninni er þann Hapoel Gilboa Galil þann 10. nóvember.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -