spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær og Zaragoza lutu í lægra haldi gegn Girona

Tryggvi Snær og Zaragoza lutu í lægra haldi gegn Girona

Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Casademont Zaragoza máttu þola tap fyrir Girona í ACB deildinni á Spáni í dag, 78-69.

Eftir leikinn er Zaragoza í 15. sæti deildarinnar með þrjá sigra og níu töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 14 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi tveimur stigum, og fjórum fráköstum.

Næsti leikur Zaragoza er gegn Barcelona á milli jóla og nýárs, þann 28. desember.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -