spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær með 8 stig og 9 fráköst á aðeins 12 mínútum...

Tryggvi Snær með 8 stig og 9 fráköst á aðeins 12 mínútum í sigri Zaragoza

Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Casademont Zaragoza kjöldrógu í kvöld lið Retabet Bilbao í ACB deildinni á Spáni, 105-76. Eftir leikinn er Zaragoza í 15 sæti deildarinnar með 4 sigra og 8 töp það sem af er tímabili.

Á rúmum 12 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær 8 stigum, 9 fráköstum, 2 stoðsendingum og vörðu skoti.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -