Valur vann sinn þriðja sigur í röð í Bónus deild karla þegar liðið lagði Njarðvík, 85-93, í IceMar-höllinni .
Gestirnir náðu strax undirtökunum, unnu fyrsta leikhlutann 18-25 og létu forystuna aldrei af hendi þrátt fyrir ágæta spretti heimamanna, sem söxuðu á muninn í þriðja leikhluta en komust aldrei yfir.
Valur var sterkari í teignum og skoraði þar 48 stig gegn 34, auk þess að skora 20 stig úr hraðaupphlaupum. Pablo Cesar var stigahæstur gesta með 22 stig, Dwayne bætti við 18 stigum og 7 stoðsendingum og Kári skoraði 16. Atli Freyr og Kristófer tóku 9 fráköst hvor.
Hjá Njarðvík var Makye fremstur með 21 stig og 10 stoðsendingar og Aleksa skilaði 20 stigum og 8 fráköstum. Isaiah kom sterkur af bekknum með 14 stig, en laskað heimaliðið situr eftir án stiga eftir þrjár umferðir á meðan Valur er á fullri ferð í toppbaráttunni.




