spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær góður er Zaragoza lagði Real Madrid

Tryggvi Snær góður er Zaragoza lagði Real Madrid

Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Casademont Zaragoza gerðu sér lítið fyrir og skelltu stórliði Real Madrid í kvöld í ACB deildinni á Spáni, 94-89.

Eftir leikinn er Zaragoza í 16. sæti deildarinnar með einn sigur og sex töp.

Á rúmum 14 mínútum spiluðum í leiknum var Tryggvi með 11 stig og 4 fráköst.

Næsti leikur Zaragoza er eftir landsleikjahlé, þann 19. nóvember gegn Real Betis.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -