spot_img
HomeFréttirTryggvi Snær fyrir leikinn gegn Úkraínu "Þurfum að verja heimavöllinn"

Tryggvi Snær fyrir leikinn gegn Úkraínu “Þurfum að verja heimavöllinn”

Ísland mætir Úkraínu annað kvöld í Ólafssal í undankeppni heimsmeistaramótsins 2023. Um er að ræða seinni leik þessa ágúst glugga, en liðið tapaði á dögunum fyrri leiknum gegn Spáni ytra.  Leikurinn hefst kl. 20:00 og verður sýndur beint á RÚV2. 

Í fyrri leiknum í riðil Íslands unnu, ásamt Spáni, Georgía og Ítalía sína leiki. Því færðist Ísland niður úr öðru sæti hans niður í það fjórða, en aðeins þrjú efstu liðin komast áfram á lokamótið á næsta ári.

Karfan kom við á æfingu hjá Íslandi í dag og spjallaði við Tryggva Hlinason um tapið á Spáni, þennan seinni leik gluggans gegn Úkraínu, undirbúning liðsins og hvernig það er að spila fyrir fullu húsi í Hafnarfirði.

Fréttir
- Auglýsing -