Tveimur leikjum er lokið í 1. deild karla í kvöld þar sem gestirnir fóru með sigur af hólmi í miklum skotveislum.
Haukar héldu ótrúlegri sigurgöngu sinni áfram þegar þeir heimsóttu Þór á Akureyri og settu niður heil 126 stig í 100–126 sigri. Haukar sitja þar með einir á toppi deildarinnar með tíu stig eftir fimm leiki, á meðan Þórsarar sitja eftir í 9. sæti með tvo sigra.
Á Selfossi fóru Þórsarar úr Þorlákshöfn með sigur af hólmi í hörku Suðurlandsslag, 100–107. Með sigrinum fylgja Þorlákshafnarbúar toppliðunum fast eftir og jöfnuðu ÍA að stigum í 2.–3. sæti með 8 stig, en Selfoss situr áfram í 7. sætinu með 4 stig.
Úrslit kvöldsins í 1. deild karla:
Selfoss 100 – 107 Þór Þ.
Þór Ak. 100 – 126 Haukar





