spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær frábær gegn Real Betis

Tryggvi Snær frábær gegn Real Betis

Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza lögðu Real Betis í kvöld í ACB deildinni á Spáni, 89-82.

Eftir leikinn er Zaragoza í 14. sæti deildarinnar með fimm sigra og þrettán töp það sem af er tímabili.

Á sléttum 30 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær 14 stigum, 10 fráköstum, 3 stoðsendingum og 4 vörðum skotum.

Næsti leikur Tryggva og Zaragoza í deildinni er þann 5. febrúar gegn Baskonia.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -