spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær atkvæðamikill gegn Gran Canaria

Tryggvi Snær atkvæðamikill gegn Gran Canaria

Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tap í kvöld fyrir Gran Canaria í ACB deildinni á Spáni, 79-76.

Eftir leikinn eru Zaragoza í 8.-13 sæti deildarinnar með þrjá sigra og fjóra tapaða það sem af er tímabili.

Tryggvi Snær var nokkuð atkvæðamikill fyrir Zaragoza í leiknum, á rúmum 30 mínútum spiluðum skilaði hann 9 stigum, 3 fráköstum, 3 stoðsendingum, stolnum bolta og 3 vörðum skotum.

Næsti leikur Zaragoza í deildinni er gegn Real Betis þann 7. nóvember.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -