spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær atkvæðamikill gegn Baskonia

Tryggvi Snær atkvæðamikill gegn Baskonia

Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza lutu í lægra haldi gegn Baskonia í ACB deildinni á Spáni í dag, 91-79.

Zaragoza eru eftir leikinn í 14. sæti deildarinnar með fimm sigra og þrettán töp það sem af er tímabili.

Á 27 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær 12 stigum, 5 fráköstum, stoðsendingu og 5 vörðum skotum.

Næsti leikur Tryggva og Zaragoza er þann 11. febrúar gegn Fuenlabrada.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -