spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi og félagar lutu í lægra haldi

Tryggvi og félagar lutu í lægra haldi

Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao máttu þola tap í dag gegn Palencia í ACB deildinni á Spáni, 80-97.

Á rúmri 21 mínútu spilaðri í leiknum skilaði Tryggvi Snær 13 stigum, 6 fráköstum og 2 vörðum skotum, en hann var næst framlagshæstur í liði Bilbao í leiknum.

Bilbao er eftir leikinn í 1. sæti deildarinnar með 13 sigra og 19 töp það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -