spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi með sinn besta leik á Spáni til þessa

Tryggvi með sinn besta leik á Spáni til þessa

Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Monbus Obradoiro fara ágætlega af stað í spænsku ACB deildinni. Liðið er með tvo sigra eftir þrjá leiki.

Um síðustu helgi tapaði liðið hinsvegar illa gegn Iberostar Tenerife um síðustu helgi 78-52.

Þar lék Tryggvi sinn besta leik á Spáni til þessa þar sem hann var með 8 stig og 9 fráköst auk þess að hitta vel úr skotum sínum. Þar með varð hann lang framlagshæstur í liði Obradoiro í leiknum.

Obradoiro spilar á móti Valencia um næstu helgi en Tryggvi er einmitt í eign Valencia en í láni hjá Monbus.

Fréttir
- Auglýsing -