Íslenska U18-landslið karla tryggði sér leik um sæti í átta liða úrslitum B-deildar Evrópumótsins í Rijeka í Króatíu með sannfærandi 80:67-sigri á Úkraínu í kvöld.
Patrik Joe Birmingham var í miklu stuði og leiddi íslenska liðið með 25 stigum, en næstur honum var Jakob Kári Leifsson sem skoraði 13 stig.
Leikurinn fór hægt af stað hjá Íslandi og vann Úkraína fyrsta leikhlutann 20:17. Íslensku strákarnir sneru hins vegar taflinu við með frábærum leik í öðrum og þriðja leikhluta sem lagði grunninn að öruggum sigri.
Úrslitin þýða að Ísland leikur hreinan úrslitaleik við Pólland á morgun í lokaleik riðlakeppninnar þar sem annað sætið í riðlinum er í húfi.



