Einn leikur fór fram í úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna í kvöld. Um var að ræða fjórða leik liðanna, en með sigri gátu Haukar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn.
Með sigrinum í kvöld náði Njarðvík að tryggja sér oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn, en hann mun fara fram í Ólafssal í Hafnarfirði komandi þriðjudag 13. maí.
Fyrir leik
Haukar höfðu komist í 2-0 í einvíginu. Mistókst að tryggja sér titilinn í spennandi leik á heimavelli í leik þrjú og áttu þess kost að bæta fyrir það nú í kvöld. Liðin tvö að sjálfsögðu þau tvö bestu í deildarkeppni Bónus deildarinnar og höfðu bæði farið nokkuð örugglega í gegnum átta liða og undanúrslit úrslitakeppninnar.
Gangur leiks
Það var ljóst að stuðningsfólk beggja liða var mætt til að vera með læti í kvöld. Njarðvíkingar byrjuðu einbeittar í fyrsta leikhluta og bættu hægt og rólega við muninn sem fór mest upp í 9 stig. Haukar náðu að klóra niður þann mun og staðan eftir fyrsta leikhluta var 25 – 20.
Aftur byrjuðu heimastúlkur betur. Þær náðu muninum aftur upp í 9 stig. Áður en gestirnir vöknuðu töluvert fyrr en í fyrsta leikhluta. Um miðbik leikhlutans var munurinn komin niður í 3 stig. Njarðvíkingar komu þá að krafti inn í leikinn og komu muninum upp í 8 stig. Þá tóku Haukar aftur við og minnkuðu muninn niður í 1 stig þegar um mínúta var eftir af leikhlutanum. Haukar áttu síðasta skotið í leikhlutanum, það vildi ekki ofan í. Leikurinn í járnum í hálfleik 42 – 41. Brittany allt í öllu hjá Njarðvík með 21 stig. Hjá Haukum var Devos sömuleiðis með 21 stig.
Haukar jöfnuðu leikinn af vítalínunni í byrjun þriðja leikhluta og komust yfir í fyrsta skipti í leiknum. Njarðvíkingar náðu aftur forustu í leiknum en um miðbik leikhlutans var það bara ein karfa sem skildi liðin af. Njarðvíkingar voru sterkari seinni hluta hálfleiksins. Lára Ösp kom af bekknum og setti þrjá þrista í röð og sterk vörn Haukana var ekki með svör við því. Staðan eftir þriðja leikhluta 69 – 59.
Lára Ösp byrjaði leikhlutann á fjórða þristinum. Njarðvíkingar skoruðu 7 stig gegn einu stigi frá gestunum fyrstu 3 mínútur leikhlutans. Þegar 6 mínútur voru eftir af leiknum var Njarðvík komnar með þægilega 78 – 62 stöðu og lítið sem gestirnir virtust geta gert annað en að horfa upp á sigur Njarðvíkinga. Heimastúlkur komust mest 26 stigum yfir. Bikarinn fer ekki á loft í kvöld. Lokatölur 94-78.
Kjarninn
Það var blóðugt fyrir Hauka að hafa ekki náð að klára dæmið í síðasta leik í Ólafssal. Fyrir utan stuttan kafla um miðbygg leiks kvöldsins má segja þær hafi verið að elta allan tímann. Fá þó eitt tækifæri í viðbót til að landa titlinum og blessunarlega fyrir þær, er sá leikur á heimavelli þeirra í Ólafssal.
Njarðvík gerði gífurlega vel í leik kvöldsins. Sást langar leiðir á þeim að þær höfðu trú á því þær gætu fullkomnað endurkomuna í einvíginu og tryggt sér þennan oddaleik. Þrenna þeirra, Brittany, Emilie og Paulina allar á deginum sínum í kvöld, en þá voru Lára Ösp Ásgeirsdóttir og Hulda María Agnarsdóttir einnig mikilvægar fyrir liðið í kvöld.
Atkvæðamestar
Bestar í liði Njarðvíkur í kvöld voru Brittany Dinkins með 29 stig, 7 fráköst, 5 stoðsendingar, 4 stolna bolta, Emilie Hesseldal með 9 stig, 14 fráköst, 3 varin skot og Pauline Hersler með 16 stig og 14 fráköst.
Fyrir Hauka var það Lore Devos sem dró vagninn með 26 stigum og 15 fráköstum. Henni næst var Þóra Kristín Jónsdóttir með 12 stig og 9 stoðsendingar.
Hvað svo?
Oddaleikur um Íslandsmeistaratitilinn verður í Ólafssal í Hafnarfirði komandi þriðjudag 13. maí.