HomeFréttirTreyjur Kobe Bryant upp í rjáfur í nótt

Treyjur Kobe Bryant upp í rjáfur í nótt

 

Í nótt kl. 03:30 á íslenskum tíma mun lið Los Angeles Lakers taka á móti meisturum Golden State Warriors í NBA deildinni. Leikur sem merkilegur er fyrir margar sakir, en kannski þó helst þær að í hálfleik verður einn besti leikmaður sögu heimaliðsins og sögu deildarinnar, Kobe Bryant, verða heiðraður. Væntanlega með einhverjum ræðum, sem og verða þær treyjur sem hann lék í hengdar upp á veggi Staples Hallarinnar, en fyrri hluta 20 ára ferils síns hjá liðinu lék hann í treyju #8, þann seinni í treyju #24.

 

Á 20 ára feril sínum með liðinu vann hann troðslukeppnina í eitt skipti, var tvisvar stigahæsti leikmaður deildarinnar, í 12 skipti var hann í varnarúrvalsliði deildarinnar, í 15 skipti í heildarúrvalsliði deildarinnar, í 4 skipti verðmætasti leikmaður stjörnuleiksins sem hann tók í 18 skipti þátt í, tvisvar var hann verðmætasti leikmaður úrslitanna, í eitt skipti verðmætasti leikmaður deildarinnar og í fimm skipti varð hann NBA meistari með liði sínu. Þá vann hann í tvö skipti í röð Ólympíugull með bandaríska landsliðinu.

 

Bryant mun með #8 &#24 slást í hóp vel valdra leikmanna leikmanna sem liðið hefur heiðrað með slíkum athöfnum áður, Wilt Chamberlain #13, Elgin Baylor #22, Gail Goodrich #25, Magic Johnson #32, Kareem Abdul Jabbar #33, Shaquille O´neal #34, James Worthy #42, Jerry West #44, Jamal Wilkes #52 og leiklýsinum Chick Hearn.

 

Nike reyndi fyrr í dag að fá fylgjendur sína á Twitter til þess að ræða hvor Kobe hafi verið betri, sá fyrri í #8 eða sá seinni í #24. Sjálfur svaraði hann þeirri spurningu á samfélagsmiðlinum á frekar einfaldan hátt:

 

 

 

Aðrir leikmenn deildarinnar um hann eftir að hann ákvað að hætta 2016:

 

 

20 ára saga Kobe á 9 mínútum:

 

 

Besta karfa Kobe gegn öllum liðum deildarinnar:

 

 

Bleacher Report:

Fréttir
- Auglýsing -