Tómas Þórður Hilmarsson hefur spilað mjög vel fyrir Stjörnuna á þessu tímabili og átti ágætan leik í kvöld þrátt fyrir tap:
Ykkur gekk ágætlega að stoppa Hester, var uppleggið að tvímenna gegn honum?
Nei það var það nú ekki – ekki nema þegar við vorum að skipta. Hlynur á alveg að ráða við hann einn á einn og það gekk ágætlega.
Einmitt, Hester var með örfá stig í hálfleik og þið með fjórtan stiga forskot og þetta leit vel út.
Já þetta er svolítið sama sagan aftur og aftur. Við spilum vel í fyrri hálfleik en mætum svo ekki í seinni hálfleik. Við erum bara enn inn í klefa eða ég veit ekki hvað. Þeir náðu þessu 14 stiga forskoti niður á einni og hálfri mínútu eða eitthvað! Það náttúrulega gengur ekki að mæta eins og aumingjar í þriðja leikhluta.
Þetta hefur þó ekki verið allt alveg svart hjá ykkur undanfarið, tókuð góða sigra á Suðurnesjunum, en þetta er kannski svolítið upp og niður hjá ykkur?
Jájá, tímabilið hefur verið svolítil brekka og við höfum ekki náð að sýna nógu góðan leik á heimavelli finnst mér – mér finnst við hafa verið lélegir heima og eiginlega bara betri úti. Þetta er eitthvað sem við þurfum að laga eftir jólafrí. Það er alveg glatað að fara inn í jólafríið með tapi hér heima.
Viðtal / Kári Viðarsson




